Auglýsing

Könnun

Á ađ skylda konur á aldrinum 15-35 ára til ađ ganga um berbrjósta á tyllidögum ?

Textareitur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Búiđ

04. janúar 2007 klukkan 01:57
Þetta dæmi er búið. Blákaldur veruleikinn er hafinn aftur hér á Bifröst og líklega verða ekki fleiri færslur.
Takk
F.B.
Friggi, Levy og Grjóni
Engin athugasemd

Kaldhćđni

13. desember 2006 klukkan 22:19

Ciao ciao

Við félagarnir hér erum í áfanga sem heitir Criminology og kennarinn okkar er mjög indæl kona. En þessi kona á sér leyndarmál sem hún deildi með okkur í síðasta tíma.
Í október var hún tekin af löggunni fyrir of hraðan akstur. Þegar maður er sektaður af löggunni er skírteinið tekið af þér og þú þarft að fara eitthvert og borga sektina til þess að fá ökuskírteinið til baka. Þessi kona ákvað að láta á það reyna að ná ekki í skírteinið sitt og keyra um án skírteinis á meðan hún var að kenna okkur um hegðun glæpamanna og glæpi almennt.
Um daginn kom hún svo of seint í tíma því að löggan tók hana fyrir að keyra yfir á rauðu ljósi. Í hvernig heimi lifum við spyr ég nú bara? Það er ekki einu sinni hægt að treysta því að Criminology kennarinn sinn brjóti ekki lögin.

Annars er ekkert að frétta og lífið gengur sinn vanangang nema það að Corky er dáinn.

Buono sera.... Questa sera?

Victory John
Friggi, Levy og Grjóni
6 athugasemdir

Testing

11. desember 2006 klukkan 18:04
Próf í morgun kl 9 í International trade law. Eða réttara sagt það átti að byrja kl 9:00. Mættum fyrir 9 og þá voru allir komnir fyrir utan 2 finna (kannki bara að leita að þeim og "finna" þá hahaha). Annar kennaranna var mættur en hann er nett þroskaheftur. Sagði okkur að bíða í svona 10 mín til 15 mín vegna þess að það vantaði 2 nemendur sem og hinn kennarinn var ekki mættur. Síðan byrjaði hann að lesa upp prófreglurnar svona til þess að drepa tímann og mætti síðan hinn kennarinn 20 yfir 9 og voru þeir bara rólegir að spjalla saman og svona. Loksins ákváðu þeir að byrja prófið kl 9:31. En það fór þannig fram að þeir skrifuðu sitthvora spurninguna (einn með eina spurningu) á töfluna. Síðan mættu finnarnir 2 aðeins seinna. Kennararnir voru síðan bara að spjalla saman á meðan prófið var og síðan fór annar að tala í símann og svona, bara jolly á því.
Vildi bara deila þessu með ykkur og fræða ykkur um það hvernig prófin fara fram á Ítalíu. By the way þá þurftum við að nota okkar eigin blöð þannig að það hefði í raun og veru ekki verið neitt mál að svindla, bara hafa eitt autt blað efst og glósurnar undir því en þeir voru ekkert að fylgjast með því hvort við værum með auð blöð eða ekki. díses.

ower
F.B.
Friggi, Levy og Grjóni
5 athugasemdir

Muse tónleikarnir búnir

05. desember 2006 klukkan 17:31


Jæja gott fólk. Þá eru langþráðir tónleikar með Muse búnir. Tónleikarnir voru haldnir rétt fyrir utan Milan í einhverri svaka tónleika og íþróttahöll. Ég hef ekkert fyrir mér í þessu en ég giska á að það hafi verið svona u.þ.b. 15-20 þúsund manns á tónleikunum.
Fyrst hitaði hljómsveitin ,,Noisettes'' upp og var það slök hljómsveit að mínu mati. Það skipti ekki máli því það þurfti ekki upphitun fyrir Muse. Þeir voru magnaðir! Ég hef ekki farið á marga tónleika en þetta voru þeir allra bestu tónleikar sem ég hef farið á. Svaðaleg röddin í Bellamy, söngvaranum. Þeir spiluðu mörg lög af nýju plötunni Black Holes and Revelations í bland við öll þau gömlu og góðu.
Ef ég á að nefna þau lög sem stóðu upp úr þá voru það að sjálfsögðu Supermassive Black Hole og salurinn trylltist þegar þeir tóku nýja slagarann Starlight.
Ég beið þó spenntastur eftir því að heyra Hysteria en þeir fóru af sviðinu án þess að taka það en komu svo aftur og tóku það með trompi og það var geggjað. Friðrik beið spenntur eftir Plug-in Baby og það var mikil stemning þegar þeir tóku það. Þeir byrjuðu tónleikana á fyrsta laginu á nýju plötunni og enduðu þá á því síðasta eða ,,Knights of Cydonia'' sem ég held að sé með þeirra allra bestu lögum. Svo sýndu þeir textann með viðlaginu upp á stórum skjá svo allir myndu örugglega syngja með.

Þegar við komum út úr tónleikahöllinni tók við leit að leigubíl. Hún gekk ekkert allt of vel í byrjun en það reddaðist. Þetta er án nokkurs vafa tilfinningamesta leigubílaferð sem ég hef nokkurn tíma upplifað. Gæinn var með sjónvarpsskjá í bílnum og fyrst vorum við að horfa á fótbolta en svo þegar hann beygir út á hraðbrautina skiptir hann yfir á Playboy Channel sem var ekkert nema jákvætt. Við erum þrír saman aftur í að fylgjast grannt með léttklæddum stelpum reyna að slökkva eld þegar við lítum á hraðamælinn og sjáum að gaurinn er að keyra á 150 km hraða. Þess má geta að þetta var Kia sem eru almennt ekki taldir öruggir bílar. Ok ekkert mál, 150 km hraði á Autostrada, ásættanlegt. Gæinn er að horfa á sjónvarpið líka og gefur í og er kominn vel á 180 km hraða og farið að hvína í helvítis bílnum og bílbeltin virka ekki allt titrandi en hann heldur áfram að hlægja og segja ,,Mama mia'' í hvert skipti sem það sést í meira en gengur og gerist í sjónvarpinu. Okkur var ekki farið að standa á sama og urðum dauðfegnir þegar við sáum afleggjarann til Castellanza.

Nú kveð ég á íslensku, dauðfeginn að vera á lífi.
Bless
Sigurjón

Friggi, Levy og Grjóni
4 athugasemdir

5 tímar og 40 mín í MUSE !!!

04. desember 2006 klukkan 20:17
Friggi, Levy og Grjóni
Engin athugasemd

Ekkert sérstakt svo sem

30. nóvember 2006 klukkan 17:16

Jæja þá fer að styttast í annan endann á þessari dvöl okkar hérna á Ítalíu. Nokkrir dagar í Muse tónleika og bara gleði og gaman.

Dagarnir hjá okkur eru farnir að minna of mikið á Bifröst núna þar sem að við sitjum bara inn á herbergi að skrifa ritgerðir. Þurfum að skrifa ritgerðir fyrir Introduction to Italian Law, Business Contract Law og European Insurance Law. Kennararnir komu okkur í opna skjöldu þegar þeir fóru allt í einu að ætlast til þess að við myndum fara að læra.

Stefnumótið okkar með ítalska/íslenska gaurnum var hin fínasta skemmtun. Tók okkur fyrst á stað þar sem maður gat étið eins mikið og maður vildi. Þegar maður var næstum því búinn að éta á sig gat þá sagði hann okkur að slaka á, þetta væri bara forréttur. Fórum svo á local pizzastað sem var mjög góður. Það voru pantaðar 4 pizzur, nokkrir bjórar og svo fékk gaurinn sér einhvern ekta ítalskan kokteil. Þegar hann sýndi okkur svo kvittunina þá stóð 3,40 evrur. Skattsvik í gangi????? Þetta var eins og alvöru stefnumót því svo bauð hann okkur heim til sín (djöfull er asnalegt að segja frá þessu) og þá sá maður að hann átti t.d. kvkmyndina um Gísla Súrsson.

Erum að fara í kvöld með hinum skiptinemafíflunum að borða ,,traditional Lombardy dinner'' en Lombardy er héraðið sem skólinn okkar er í. Svo annað kvöld (föstudag) er disco í Milan.

Áður en maður veit af þá byrja svo prófin en við förum í fimm próf held ég og það síðasta er 21. des.

Konnichwa (gott kvöld á japönsku)

Sigurjón

P.S. ég ætla að vera barnalegur og segja að Liverpool eru ömurlegir, Arsenal eru ömurlegri og Chelsea eru ömurlegastir. Hins vegar eru Man. Utd. bestir.
Á meðan við erum efstir í deildinni (og við verðum efstir) þá verð ég með svona skítkast. Ég þarf allavega ekki að hafa miklar áhyggjur af Arsenal eða Liverpool.
Ég veit að einn bloggari á þessari síðu samþykkir ekki þessa athugasemd en þetta er lýðræði, 2 á móti 1. Svekk.....
Friggi, Levy og Grjóni
7 athugasemdir

Ótrúleg tilviljun

26. nóvember 2006 klukkan 21:18


Eins og glöggir lesendur hafa eflaust áttað sig á þá erum við staddir í bæ sem heitir Castellanza og hér búa u.þ.b. jafnmargir og í Kópavogi.
Við skelltum okkur á Heineken barinn sem er hinn staðurinn hér í bæ og var það mikið glens og gaman. Við vorum ekki búnir að vera lengi á staðnum þegar við hittum Ítala sem er að læra í Háskólanum í Rekjavík og á barn með íslenskri stelpu. Hann talar smá íslensku en hún er mjög bjöguð. Við vorum einhverntíman búnir að reikna út hverjar líkurnar væru á því að hitta Íslending og þær voru 0,000 eitthvað þannig að þetta kom skemmtilega á óvart. Hann er að fara til Íslands aftur á morgunn og ákvað að bjóða okkur strákunum út að borða í kvöld á einhvern rosa góðan local pizzastað. Ég ætla að láta sms-ið sem hann sendi mér fylgja í þessari færslu.

Frobert! eg hr ingju pig a morgum! eg veit flott pizzeria... very local! u guys will love it! sjaumst a morgum!

Þetta er magnað sms og við hlógum mikið að þessu enda langt síðan að við höfum talað íslensku við einhverja aðra. Luca eins og hann heitir segist elska Reykjavik og segir að íslenskar stelpur séu mjög ............. Þið megið fylla í eyðurnar ef þið viljið.

Fusakenna (fuck you á japönsku)

Sigurjón

Friggi, Levy og Grjóni
2 athugasemdir

Furđulegur skóladagur !!!!!!!

25. nóvember 2006 klukkan 01:47
Dagurinn byrjaði á því að fórum í international trade law tíma á ókristilegum tíma eða kl 9 árdegis. Ekki frásögu færandi nema hvað að við höfðum skilað inn heimaverkefni í þessum áfanga 2 dögum áður, sem var tja copy paste hjá öllum (fyrirmæli kennarans) haha. Jæja síðan ákvað kennaramaðurinn að skella hverju og einu verkefni upp á skjávarpa og láta þann er gerði verkefnið koma og sitja við hliðina ´á sér á meðan hann fór yfir verkefnið og gagngrýndi það. Alveg magnað helvíti, ég gæti rétt ýmindað mér það ef að t.d. Siggi Arnalds myndi taka eitt og eitt verkefni fyrir á Bifröst og láta nemandann standa við hliðin á sér á meðan, það tæki allann daginn!!!.
Ég þurfti auðvitað að vera fyrstur því mitt verkefni var fyrst á lista hjá kennaranum. Crap, þannig að ég eyddi um 30 mín af tímanum sitjandi við hliðina á kennaranum á meðan hann talaði um verkefnið. Svosem ekkert að því, í sjáfu sér en alger tímaeiðsla og bull, síðan kom hver nemandinn á fætur öðrum. Reyndar hljóp hann yfir verkefnið hjá Levy einhverra hluta vegna !!! En við Sigurjón fórum allavegana í gegn um þennan pakka.

Síðan var próf í Inngang að Ítalskri lögfræði sem innihélt 6 krossaspurningar sem innihéldu sumar hverjar 2 svarmöguleika nú eða þrjá, er þetta grín eða hvað?? Náðum allir þannig að þá er helmingnum af þeim áfanga lokið. Þeim áfanga verður líklegast fagnað í kvöld.

Svona er Castellanza í dag.
Ælir
F.B.
Friggi, Levy og Grjóni
6 athugasemdir

Foxy lady, Fox town.

20. nóvember 2006 klukkan 16:47
Ágætu lesendur nær og fjær. Í gær tóku drengirnir sig til ásamt Satoshi sem er japani og Isak sem er (svíi) (svíi innan sviga haha) og skelltum okkur í Fox Town outlet, en fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það gríðarstór verslunarmiðstöð rétt við landamærin við Sviss/Ítalíu, þó Svissmegin. Líklega má segja að þessi verlunarmiðstöð sé svona á við 4 smáralindir eða svo. En þar er hægt að gera góð kaup á hinum ýmsu vörum, þó sérstaklega fatnaði. Málið er það að öll helstu merkin í bransanum í dag fara með þær vörur sem ekki seljast strax í þeirra búðum og seljar þær þarna á góðum afslætti (outlet: let it out). 
Ég gæti trúað því að þetta sé draumastaður kvenfólksins og líklega gætu þær unað sér vel þarna sem dögum skiptir.
Við ætluðum nú að kaupa okkur Armani jakkaföt en það var snarlega hætt við það þegar verðmiðinn var skoðaður því ódýrustu fötin voru á um 600 evrur og allt upp í 4000 evrur, samt sem áður keypti undirritaður sér Armani gallabuxur, ekki amalegt það. Valgeir keypti sér m.a. forlátann svartann hnésíðan frakka sem er með svona by sniði sem er mjög skemmtilegt ásamt fleiru, og hafði ég það nú svona í flimtingum að Valgeir yrði nú sviptur fjárræði eftir þetta allt saman, haha.

Vorum alveg dauðþreyttir þegar við komum heim enda búnir að labba í einhverja 6 tíma um verslunarmiðstöðina. Skil ekki hvernig konur fara að þessu. Endilega kommentið og segið okkur frá því hver sé lykillin að því að tóra í verslunarmiðstöð.
Læt slóðina fylgja svona til gamans: http://www.foxtown.ch/mendrisio/it/welcome.html
Jæja þetta var nú svei mér skemmtileg færsla.

Seinna
F.B.
Friggi, Levy og Grjóni
3 athugasemdir

Loksins.....

16. nóvember 2006 klukkan 18:09

Það var mikið að þetta kerfi fór að virka aftur. Ég ætla að vona að þetta komi ekki fyrir aftur því þá verður haldinn fundur hjá ragazzi.

En við strákarnir skelltum okkur til Róm um síðustu helgi ásamt fríðu föruneyti 70 annarra skiptinema. Þessi ferð var í alla staði frábær fyrir utan það að við þurftum að hanga í rútu átta tíma hvora leið. Sumir skemmtu sér reyndar betur en aðrir í rútunni.
Það var ýmislegt markvert sem átti sér stað í Róm. Hollenski félagi okkar snappaði og fór að kasta stólum. Það má ekki segja neitt við þessa hollendinga. Japanski gaurinn sem ætlar að koma til Íslands um jólin var neyddur til þess að drekka rauðvín þangað til að hann drapst áfengisdauða. Það er ekkert smá fyndið að sjá þessa asíubúa drekka því þeim vantar eitthvað ensími og andlitið á þeim verður eldrautt. Við lugum að honum að hann gæti farið út í búð og keypt þetta ensími og hann var næstum því rokinn af stað. Frekar auðtrúa strákurinn. Sumir sáu páfann halda ræðu en við misstum af því. Það er ekki eins og maður sé kaþólskur hvort sem er.
Annars er lítið annað að hugsa um þessa dagana en bara skólinn en það styttist í Muse tónleikana. Það er jafnvel hugsanlegt að einhverjir okkar verði eftir og setjist að í Austur-Evrópulandi, maður veit aldrei.
Það eru einnig mjög takmarkaðar líkur á því að þið fáið að sjá fleiri myndir af okkur strákunum því myndavélin hans Valgeir komin í pásu.

Ciao bello/a
Sigurjón

P.s. Djöfull er gott að vera ekki á bifröst núna. Ég er að brjálast á þessum pósti.
Friggi, Levy og Grjóni
9 athugasemdir